Þriðjudagur, 19. desember 2006
Batnandi mönnum er best að lifa
Í umræðunni hefur því verið haldið fram að ég sé beggja vegna borðs og þar með ófær um að gera greinarmun á hagsmunum Reykjavíkurborgar og Faxaflóahafna. [...] Það er sannfæring mín að í umræddu verkefni sé ekki um neina hagsmunaárekstra að ræða.
Það er miður að Óskar sjái ekki hversu óeðlileg vinnubrögð meirihlutans voru við skipan hans í þetta verkefni, enda klárlega um hagsmunaárekstra að ræða. Vonandi sér Framsóknarflokkurinn að sér við pólitískar skipanir og ráðningar í framtíðinni.
Mánudagur, 18. desember 2006
Önum ekki blint áfram- tökum upplýsta ákvörðun!
Áhugaverð grein eftir Dofra Hermannsson, framkvæmdastjóra þingflokks Samfylkingarinnar birtist í lesblaði Morgunblaðsins um helgina. Þar skrifar hann opið bréf til umhverfisráðherra og sækir um leyfi til rannsókna á þeirri auðlind sem felst í núverandi náttúruverðmætum á nokkrum náttúruperlum. Iðnaðarráðherra hefur ekki gefið leyfi til orkurannsókna á þeim perlum en þær hafa verið inní umræðunni sem hugsanlegir virkjanakostir. Svo sannarlega sniðug hugmynd hjá Dofra. Greinina má sjá í heild hér.
Það er vert að velta fyrir sér hvers vegna stjórnvöld hafa ekki lagt fjármuni í rannsóknir á þessum svæðum svo hægt sé að meta gildi þeirra. Í stað þess hafa stjórnvöld gefið rannsóknarleyfi til orkuvinnslu fyrir hvert svæðið á fætur öðru án þess að vita hvaða verðmæti eru fólgin í því að nýta svæðið á annan hátt. Það er nauðynlegt að staldra við, rannsaka svæðin út frá náttúrufari og nýta þá þekkingu til að taka upplýsta ákvörðun um hvernig eigi að nýta svæðið sem gæti verið til orkuvinnslu, ferðaþjónustu, útivistar eða einhvers annars.
Laugardagur, 16. desember 2006
Þeir hljóta að iða af spenningi yfir þessum notalegu samverustundum
Framsóknarflokkurinn er 90 ára í dag.
Fram kom í hádegisfréttum Stöðvar 2 að:
"Um land allt standi framsóknarfélög fyrir hátíðardagskrá og notalegum samverustundum þar sem framsóknarmenn geta hist og haldið daginn hátíðlegan í góðra vina hópi. Boðið er upp á ýmsar ljúffengar veitingar, í föstu formi og andlegu, allt eftir því hvað andinn blæs mönnum í brjóst á hverjum stað. Þingmenn og ráðherrar munu koma við eftir því sem aðstæður leyfa.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 15. desember 2006
Vandinn við bleik bindi
Tekið af heimasíðu Ágústs Ólafs Ágústssonar, varaformanns Samfylkingarinnar:
Þriðjudagurinn - 5. desember 2006 / Athyglisvert
Klæði mig eins og stelpa
Um daginn var ég að undirbúa til vinnu og klæddi mig í svört jakkaföt, hvíta skyrtu, svarta skó og að lokum setti ég á mig bleikt bindi. Þá vatt 4 ára dóttir mín að mér og leit á mig vel og vandlega og spurði af hverju ég væri að klæða mig eins og stelpa.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 22:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 15. desember 2006
Vissum ekki að þeir væru feðgar
Kratabloggið er í aðdáendahópi Bjarna Harðasonar fyrrverandi ritstjóra Sunnlenska fréttablaðsins.
Bjarni er einn fárra Framsóknarmanna sem reynir enn að bendla stefnu og störf flokksins síns við hugmyndafræði. Og hann hefur jafnframt þorað að láta forystuna heyra það í gegnum tíðina.
Vissulega vanþakklátt hlutverk það eins og dæmin sanna.
Við fjölluðum um framboð Bjarna til 2.sætis á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi hér á síðunni fyrr í dag. Okkur var hins vegar bent á að það í dag að annar maður sem við höfum dáðst að úr fjarlægð, er einmitt sonur téðs Bjarna.
Þetta er Egill Bjarnason sem hefur staðið sig eins og hetja við hjálparstörf í Palestínu. Egill sem er aðeins 18 ára gamall hefur bloggað um reynslu sína af dvölinni í Palestínu og viðskiptum við Ísraleska setuliðið.
Það er eins og menn vita mjög alvarlegt ástand á þessum slóðum og meðferð Ísralea á palestínumönnum í rúm 50 ár gerir að ekki sér fyrir endann á því. Egill skrifar nú síðast um vin sinn sem hafi verið skotinn í höfuðið af Ísraelum, 15 ára gamall drengur úr flóttamannabúðum þar sem Egill hefur starfað.
Vonandi kemur Egill heill heim og ef svo ólíklega vildi til að karl faðir skyldi ná inn á þing þá væri óskandi að sonurinn hefði áhrif á hann í málefnum heimastjórnarsvæðanna.
Framsóknarflokkurinn hefur nefnilega ekki gert mikið við völd sín í utanríkisráðuneytinu til að stuðla að friði á svæðinu eða þrýsta á Bandaríkjamenn að láta af stuðningi sínum við mannréttindabrot Ísraela í Palestínu.
P.s. systir Egils mun vera slordóni
Föstudagur, 15. desember 2006
Íslenskir þingmenn hafa verið fullir í ræðustól Alþingis
Í Fréttablaðinu í dag er sagt frá því að norskur þingmaður, Per Sandberg, sé farinn í leyfi í óákveðinn tíma eftir að upp komst að hann farið fullur upp í ræðustól norska Stórþingsins. Per mun hafa drukkið þrjú ákavítisstaup og einn bjór í mötuneyti þingsins áður en hann flutti ræðu sína.
Þetta framferði norska þingmannsins hefði líklega ekki talist stórmál á hinu íslenska Alþingi en þar tíðkast að þingmenn detti í það á síðasta degi þings.
Eins og menn vita þá tefst ósjaldan að ljúka þingstörfunum og óþolinmóðir þingmenn hafa því sumir hverjir í gegnum árin byrjað að staupa sig nokkru áður en forsetinn slær loks í bjölluna.
Þess eru allmörg dæmi, bæði gömul og ný, um að þingmenn hafi sumir farið nokkuð hífaðir í ræðustól við þessar kringumstæður þó að flokksfélagar þeirra reyni að halda aftur að þeim.
Áhorfendur sem fylgjast náið með sjónvarpsútsendingum frá Alþingi geta vottað um að merki ölvunar, roði í kinnum, þvoglumæli, rauð nef og augu hafa í einstaka tilfellum sést í ræðustólnum við þinglokin. Þó veit Kratabloggið ekki til þess að slompaðir þingmenn hafi gert neina alvarlega skandala í þessum ræðuhöldum. Frekar að ræðurnar hafi verið þeim mun styttri en venjulega og kannski ekki jafn liprar eða beittar.
Eftir að þinghaldi loks lýkur þá kíkja þingmenn venjulega á knæpur í nágrenni þingsins, s.s. Vínbarinn í Kirkjuhvoli eða þá að þeir safnist saman á skrifstofum einstakra þingmanna og geri vínbirgðum góð skil þar.
En þetta eru svo sem engar fréttir að stórt hlutfall stjórnmálamanna þyki sopinn góður. Það væri meira sjokk ef það væru sterkari efni.
Nýlega voru fluttar fréttir af því að danska blaðið BT hefði látið rannsaka klósettinn á danska þingingu og að á meirihluta þeirra hefðu fundist leifar af kókaíni.
Frétt Morgunblaðsins um málið fylgir hér:
FUNDIST hafa leifar eða ummerki um kókaínneyslu á salernum danska þjóðþingsins í Kristjánsborgarhöll. Kom það fram við athugun, sem blaðamenn á danska dagblaðinu BT gengust fyrir.
Blaðamennirnir könnuðu 30 salerni með sömu aðferðum og sömu tækjum og lögreglan notar og fundu kókaínleifar á þremur. Lögreglan segir enga ástæða til að efast um niðurstöðuna og haft er eftir Jørgen Rasmussen, aðstoðaryfirmanni eiturlyfjaeftirlits lögreglunnar í Kaupmannahöfn, að hann viti ekki til, að fyrrnefnd prófun hafi brugðist.Peter Skaarup, formaður dómsmálanefndar þingsins, segir málið alvarlegt og ætlar að taka það upp í forsætisnefndinni og Christian Mejdahl, forseti þingsins, segir, að það hljóti að lokum að koma til kasta lögreglunnar.
Sumir muna kannski að þýskt vikublað gerði fyrir allmörgum árum samskonar rannsókn á klósettum þýska þingsins og fundu, eins og Danirnir nú, víðast hvar merki um neyslu kókaíns.
Það er spurning hvort Ísafold eða einhver annar svipaður fjölmiðill hefur í hyggju að gera samskonar könnun á salernum við Austurvöll.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 19:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 15. desember 2006
Þingmaður úr vörn í sókn
Kratabloggið hefur samúð með Hjálmari hvað þetta varðar en frést hefur af tilraunum framsóknarmanna í innsta hring undanfarna mánuði til að fá einhvern af núverandi þingmönnum flokksins til að bjóða sig fram gegn Hjálmari í 2. sætið. Bjarni Harðarson, blaðamaður og álitsgjafi fór að lokum í framboð í 2.sætið en hann er mikill aðdáandi Guðna landbúnaðarráðherra. Sókn er því örugglega besta vörnin í stöðunni fyrir þingflokksformanninn.
Fram hefur komið í fréttum að Hjálmar hafi fengið lista með 2000 nöfnum þar sem hann er hvattur til að bjóða sig fram gegn landbúnaðarráðherranum. Ekki kom reyndar fram í frétt RÚV hvort um beinar undirskriftir hafi verið að ræða en 2000 manns er u.þ.b. 35% af þeim atkvæðum sem Framsókn fékk í síðustu alþingiskosningum í kjördæminu en ekki langt frá því að vera 100% þeirra sem segjast ætla að styðja flokkinn nú skv. skoðanankönnunum.
Hjálmar er vel meinandi í vetnismálum en hefur haldið fremur klaufalega á málefnum Framsóknarflokksins þegar hann hefur komið fram sem talsmaður.
Guðni er vinsæll í mælingum á stjórnmálamönnum en það er umdeilt hvort mælingin snúi að stjórnmálastörfum hans eða uppistandi á mannamótum.
Allt í allt þá er útlit fyrir spennandi kosningu milli þessara tveggja og alls enga endurnýjun hjá Framsókn í kjördæminu.
Hjálmar Árnason gefur kost á sér í efsta sætið í Suðurkjördæmi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.12.2006 kl. 00:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 14. desember 2006
Umræður í Kastljósi: Drullumall Björns Inga
Drengirnir hans Halldórs hafa reynt hvað þeir geta í skrifum sínum að tala upp framgöngu og framkomu Björns Inga Hrafnssonar í Kastljósi gærkvöldsins. Þar fór Helgi Seljan þáttastjórnandi yfir brot af pólitískum ráðningum Framsóknarflokksins í borginni á þeim fáu mánuðum sem eru frá borgarstjórnarkosningunum.
Sjálfur segir Björn Ingi:
Ég hef satt að segja lítið gaman að því að ræða stjórnmál á slíku plani og hef ekki haft frumkvæði að því.
Þvert á móti er ekki annað hægt en að draga þá ályktun að Björn Ingi kunni afar vel við sig í drullumalli og rætni dylgjupólitík. Ótrúlegast var þegar hann sagði Háskólann í Reykjavík hafa keypt sér velvild hjá Degi B. Eggertssyni, sem var með honum í þættinum, og fyrrverandi meirihluta og fengið úthlutað lóð undir skólann og í staðinn hafi Dagur fengið stöðu stundakennara við skólann. Það sjá allir sem vilja hversu fáránlegur málflutningur það er. Í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins sagði Guðfinna Bjarnadóttir, fráfarandi rektor HR og tilvonandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, skólann ekki sitja undir ummælum Björns Inga sem hún sagði vera út í hött og þeim vísað þeim alfarið á bug.
Guðmundur Steingrímsson fjallar um málið undir fyrirsögninni ,,Brúnn Ingi" og hvetur Kratabloggið lesendur sína til að lesa skrif hans. Um hlut Óskars Bergssonar segir Guðmundur m.a.:
Ég fullyrði að aldrei hafi nokkur maður í sögu íslenskra stjórnmála setið jafn augljóslega beggja megin borðs. Aldrei hefur jafnaugljóslega verið reynt að maka krókinn.
Anna Kristinsdóttir fyrrverandi borgarfulltrúi Framsóknarflokksins segir um málið:
Hitt að stjórnmálamenn séu líka verkefnaráðnir til sama stjórnvalds finnst mér aftur á móti á afar gráu svæði og ætti ekki að viðgangast. Ef menn á annað borð vilja vera þátttakendur í stjórnmálum og taka sæti á listum þá verða þeir að sætta sig við það að sitja þeim megin borðs.
Kratabloggið hvetur lesendur sína til að horfa á viðtal Helga Seljans við Dag B. Eggertsson og Björn Inga Hrafnsson frá því í gærkvöld.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 14. desember 2006
Framsókn = pólitískar ráðningar
Kratablogginu fannst áhugaverð sú upptalning sem Kastljósið var með í gær á pólitískum ráðningum Framsóknarflokksins í borginni. Ýmsir hafa notið góðs af því að vera í góðum tengslum við Björn Inga Hrafnsson, formann borgarráðs á síðustu mánuðum.
1. Óskar Bergsson varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins hefur verið ráðinn til eins árs sem verkefnisstjóri hjá Faxaflóahöfnum í tengslum við uppbyggingu Mýrargötusvæðisins. Verkefnið felst í nauðsynlegri hagsmunagæslu Faxaflóahafna gagnvart framkvæmda og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Óskar er sjálfur formaður framkvæmdaráðs borgarinnar og varaformaður skipulagsráðs að auki. Óskar fær greiddar 390.000 kr. á mánuði fyrir 15 stunda vinnuskildu á viku sem bætast ofan á föst laun 377.000 kr. á mánuði sem Óskar þiggur sem varaborgarfulltrúi og formaður framkvæmdaráðs.
Í tilfelli Óskars er kjörinn fulltrúi borgarinnar að selja fyrirtæki í bænum þjónustu við að koma verkefnum fyrirtækisins áfram gagnvart þeim sviðum borgarinnar sem hann veitir pólitíska forystu. Hann á því að gæta hagsmuna beggja vegna borðsins. Þetta er hættulegt fordæmi að mati Kratabloggsins.
2. Pétur Gunnarsson fyrrum framkvæmdastjóri þingflokks Framsóknarflokksins og ritstjóri kosningavefs flokksins hefur verið ráðinn sem verktaki hjá Faxaflóahöfnum vegna uppfærslu á netsíðu fyrirtækisins. Verkefnið er til 3 mánaða, en óljóst er hvað hann fær í laun. Á vefsíðu sinni viðurkennir Pétur að ráðningin sé vegna tengsla sinna við Björn Inga.
Rétt er að geta þess að Faxaflóahafnir eru undir stjórnarformennsku Björns Inga Hrafnssonar flokksbróður Óskars og Péturs.
3. Ásrún Kristjánsdóttir varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins hefur verið ráðin sem verkefnisstjóri vegna kortlagningu hönnunariðnarins innan borgarinnar. Í það 3 mánaða verkefni hafa verið settar 1,5 milljónir kr., m.a. til að borga laun Ásrúnar.
4. Rúnar Hreinsson fyrrum kosningastjóri borgarstjórnarflokks Framsóknarflokksins í Reykjavík hefur verið ráðinn sem verkefnisstjóri Kvikmyndaborgin Reykjavík. Í það 9 mánaða verkefni hafa verið settar 1,5 milljónir kr., m.a. til að borga laun Rúnars. Auk þess hefur ráðgjafarfyrirtækið Innvís sem tengist Rúnari verið ráðið í margvísleg verkefni fyrir Reykjavíkurborg. Rúnar neitaði að svara hvort hann væri starfsmaður eða eigandi Innvís og einnig að svara því hvort hann hefði verið kosningastjóri framsóknarmanna í síðustu borgarstjórnarkosningum (sem allir jú vita).
Kratablogginu finnst einkennilegt að ekki skyldi vera auglýst eftir einstaklingum í þessi verkefni eða leitað tilboða verkfræðistofa eða frá reyndum verkefnisstjórum, heldur ákveðið að ráða fólkið vegna pólitískra tengsla við Björn Inga. Það er þó spurning hvort það teljist eitthvað óeðlilegt þegar Framsókn á í hlut? Enda segir Björn Ingi í Kastljósinu í gær:
Ég tel að það hafi verið fullkomlega eðlilega staðið að þessum ráðningum enda er þarna í öllum tilfellum um að ræða tímabundnar verkefnaráðningar [...] og það er nú einu sinni þannig að það er kominn nýr meirihluti sem ætlar að fylgja sínum hugmyndum úr hlaði. Ég hef ekki komið að öllum þessum ráðningum beint en ég þekki þetta fólk og treysti því.
Kratabloggið skilur ekki hvers vegna það sé eitthvað eðlilegra að ráðningar séu flokkspólitískar þegar um er að ræða tímabundnar ráðningar frekar en í fastar stöður. Markmið ráðninga hlýtur ævinlega vera að fá hæfasta fólkið til starfans og þá hlýtur að vera eðlilegt að gefa fólki sem telur sig getað unnið verkefnið tækifæri á að bjóða fram krafta sína. Ef núverandi meirihluti Framsóknar og Sjálfsstæðismanna telja að þeir sem ráðnir hafa verið séu hæfastir til að sinna verkefnunum eiga þeir ekki að óttast að auglýsa þau!
Óneitanlega leggst sá grunur að Kratablogginu að verið sé að veita pólitíska greiða. Ef þetta er pólitískar ráðningar afhverju eru þá þeir sem ráðnir eru ekki á venjulegum nefndarlaunum? Hverjum finnst eðlilegt að Óskar Bergsson sé að fá 390.000 krónur á mánuði fyrir 15 tíma vinnu á viku? Jú, þeim sem eru að veita pólitíska greiða. Eru Sjálfstæðismenn tilbúnir að standa undir pólitískum greiðum Framsóknar?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 14. desember 2006
Menn verða að gleyma málum áður en þeir gera eitthvað í þeim
Umferðarmál hafa mjög verið í deiglunni undanfarna dag. Í tilefni þess efndi samgöngumálaráðherra til blaðamannafundar í vikunni og lagði fram eftirfarandi yfirlýsingu:
Kæru landar. Vegna síendurtekinna umferðarslysa, einkum á Suðurlandsvegi, hefur ríkisstjórnin ákveðið að verja mörgum tugum milljóna í borun jarðgangna milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar. Til að minnka dauðagildrur á Vesturlandsvegi hefur ríkisstjórnin ákveðið að grafa jarðgöng frá Ólafsfirði yfir í Héðinsfjörð og áfram til Siglufjarðar. Það mun auðvelda þeim 864 bifreiðum sem aka milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar á ári, aksturinn og auka ferðaránægju ásamt því að ferðalöngum gefst tækifæri á að njóta náttúrufegurðar í Héðinsfirði en samkvæmt Hagstofunni hafa aðeins 268 manns komið í Héðinsfjörð frá árinu 1938. Jarðgöngin verða tvíbreið. Gætt hefur nokkurs ofsa í málflutningi manna um að stækka Suðurlandsbraut í tvíbreiða akstursbraut vegna undanfarinna alvarlegra umferðarslysa. Ríkisstjórnin bendir á að flas er aldrei til fagnaðar og gott sé að láta mál setjast og róast áður en menn rjúka í framkvæmdir. Menn verða að gleyma málum áður en þeir gera eitthvað í þeim. Jarðgöngin fyrir norðan og vestan eru hins vegar orðin það gömul að enginn man eftir þeim, eða svo segja kjósendur mínir fyrir vestan sem vissulega eiga nú skilið jarðgöng. ..."
Sunnudagur, 10. desember 2006
Svartur blettur á sögu þjóðarinnar
Þetta er svartur blettur á sögu þjóðarinnar [...] sem verður að upplýsa
Talsverðar utandagskrárumræður voru um símhleranir á Alþingi á föstudag. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hóf máls á umræðunum með því að segja að svo virðist sem Sjálfstæðisflokkurinn hafi misbeitt ríkisvaldinu í kalda stríðinu og vegið að orðspori og æru þeirra sem urðu fyrir hlerunum. Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, svaraði fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins í forföllum Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra og reyndi að klína hlerununum á samstarfsflokkinn Framsókn. Árni nefndi meðal annars að hlutur feðganna Steingríms Hermannssonar og Hermanns Jónassonar, fyrrverandi forsætisráðherra, væri ekki lítill í þessum efnum. Eru hleranirnar þá í lagi ef Framsókn tók líka þátt í þeim?
Í sömu umræðu lét Árni þau ummæli falla að:
Einnig væri athyglisvert að ekki væri vitað um hleranir án leyfis dómara
Kratabloggið veltir því fyrir sér hvað teljist svona athyglisvert við það? Eru það athyglisverð tíðindi ef Sjálfstæðisflokkurinn fer að lögum þó að hann hugsanlega hefði komist upp með annað þar sem allir sem komu að hlerununum eru innmúraðir, flokkshollir Sjálfsstæðismenn sem hefðu ekki gert athugasemdir þó að lög hefðu verið brotin?
Kratablogginu finnst ekki nokkurt vit í öðru en að láta þingnefnd rannsaka hlerunarmálin til að komast að hvert umfang hlerananna hafi verið og hverjir hafi staðið að baki þeim og hvaða ástæður hafi leytt til hlerananna. Eru ástæðurnar þær að Sjálfstæðismenn og Framsókn vildu fá ýtarlegri upplýsingar um starfsemi stjórnarandstöðunnar? Markmið þingnefndarinnar væri að eyða þeirri miklu óvissu sem er um þessar hleranir en ekki að sakfella einn né neinn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 9. desember 2006
Þykjustuleikur Framsóknar byrjaður
Framsóknarflokkurinn er byrjaður á sínum gamalkunna hallærisleik rétt fyrir kosningar að þykjast vera í stjórnarandstöðu í mörgum málum.
Annað hvort þykjast þeir ekki ráða neinu sbr. upphlaup Guðjóns Ólafs Jónssonar vegna samkomlagsins um þinglokin eða þá að þeir búa til andstöðu við mál sem þeir hafa sjálfir undirbúið í ríkisstjórn. Þykjast allt í einu ekki vera sú hækja/skækja sem allir eru farnir að þekkja úr 12 ára ríkisstjórnarsamstarfi þeirra við Sjálfstæðisflokkinn.
Framsóknarflokkurinn er búinn að vera í ríkisstjórn nær sleitulaust í 35 ár. Það er óhugsandi að þessi skuggaleikur þeirra virki í enn eitt skiptið. Sama hverju þeir kosta til í auglýsingar eða hversu oft sem þeir framleiða svona upphlaup í þinginu - þeir geta ekki þvegið það af sér. Hvað sem þeir lofa í kosningabaráttunni þá munu kjósendur spyrja hvers vegna þeir hafi ekki gert þetta fyrr?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 10.12.2006 kl. 00:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 7. desember 2006
Umbætur á suðvesturhorninu nauðsynlegar
Umbætur á samgöngumannvirkjum á suðvesturhorninu eru nauðsynlegar. Í morgun var umræða um tvöföldun Suðurlandsvegar á Alþingi. Kratabloggið hefur áður bent á nauðsyn þess að helstu akstursvegir til og frá höfuðborginni verði tvöfaldaðir. Það er staðreynd að frá því að Reykjanesbrautin var að hluta tvöfölduð hefur banaslys ekki orðið og alvarlegum slysum fækkað. Fólk örkumlast og týnir lífi á Suðurlandsveginum á ári hverju. Það er önnur staðreynd sem ekki er hægt að horfa fram hjá.
Kostnaður við tvöföldun Suðurlandsvegar er á reiki. Jón Rögnvaldsson, vegamálastjóri, hefur sagt í fjölmiðlum að kostnaðurinn sé 12 milljarðar. Aftur á móti segir Þorvarður Hjaltason, framkvæmdastjóri Sunnlenskra sveitarfélaga, að í sundurliðuðu bréfi frá Vegagerðinni frá miðju seinasta ári komi fram að verði útfærslan svipuð og farin var varðandi tvöföldun Reykjanesbrautar verði kostnaðurinn 7-8 milljarðar. Í umræðunni í morgun benti ennfremur Björgvin G. Sigurðsson á að í skriflegu svari samgönguráðherra við fyrirspurn á síðasta ári hafi verið áætlað að tvöföldun vegarins frá Reykjavík til Selfoss kostaði 6-8 milljarða.
Það munar talsverðu - 6 eða 12 milljarðar. Munurinn slagar upp í kosningaloforð Frjálslynda flokksins fyrir kosningarnar 2003 þegar Guðjón Arnar Kristjánsson og félagar vanreiknuðu stefnu og loforð flokksins upp á rúmlega 10 milljarða!
Hvað um það. Sturlu Böðvarssyni, samgönguráðherra, ber að höggva á hnútinn og upplýsa hver hinn raunverulegi kostnaður er við tvöföldunina.
Óvissa um kostnað við tvöföldun Suðurlandsvegar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 7. desember 2006
Formaðurinn bloggar
Fimmtudagur, 7. desember 2006
Löglegt en siðlaust
Ekki eru allir á eitt sáttir með útskýringar Kristjáns Þórs og þá ákvörðun hans að þiggja sex mánaða biðlaun.
Hlynur Hallsson, varaþingmaður Vinstri grænna, segir:
Er þetta ekki eitthvað einkennilegt? Var það semsagt Samfylkingin sem sagði bæjarstjóranum upp? En nú er Kristján Þór ekkert að hætta, hann verður forseti bæjarstjórnar. Verður hann þá á tvöföldum launum? Og svo verður hann væntanlega þingmaður eftir þann 12. maí í vor og þá einnig á þingmannslaunum. Verður hann þá á þreföldum launum í maí og júni. Er þetta ekki einum of... eða jafnvel tveimur of.... eða bara þremur of? Talandi um löglegt en siðlaust.
Stjórnarmaður í félagi ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ segir þetta um ákvörðun flokksfélaga síns:
Eins og Kristján Þór hafi ekki verið búinn að hugleiða að gefa kost á sér til þingsetu þegar hann undirritar framlengingu á starfssamning sínum að loknum sveitastjórnarkosningum?
Ég fæ ælu í hálsinn við það að lesa þessar aumu og lélegu afsakanir sem hann týnir til. Þessir sveitastjórnarmenn eru meira og minna siðlausir upp til hópa.
Halldór naut ekki biðlaunaréttar sem bæjarstjóri á Akureyri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 6. desember 2006
Málsvari venjulega fólksins
Dæmi Ingibjargar í ræðunni var eftirfarandi:
Tökum dæmi af hjónum með 500.000 krónur heildartekjur á mánuði sem tóku 12,5 milljóna króna húsnæðislán til 20 ára árið 2003 í upphafi þessa kjörtímabils. Þessi hjón hefðu að öðru jöfnu fengið 110 þúsund krónur í skattalækkun á ári á undanförnum 4 árum. En verðbólgan hefur hins vegar hækkað afborgunina af húsnæðisláni þeirra um jafnháa upphæð á sama tímabili, m.ö.o. skattalækkunin er öll farin í hærri afborganir af húsnæðisláninu. En það segir ekki alla söguna uppreiknaður höfuðstóll húsnæðislánsins hefur hækkað um 1 milljón króna umfram það sem gerst hefði ef verðbólgan hefði verið í samræmi við markmið Seðlabankans. Sú hækkun situr eftir þó að verðbólgan hjaðni og hjónin okkar munu því greiða vexti af þessari auka milljón næstu 16 árin.
Þetta ætti nú að koma róti á huga margra sem eru í þessari stöðu.
Miðvikudagur, 6. desember 2006
Bragðlaus athafnastjórnmál Vilhjálms og Björns Inga
Reykjavík á ekki lengur að vera með lægstu gjaldskrár fyrir samfélagsþjónustu. Gamla fólkið og barnafjölskyldurnar skulu borga.
Miðvikudagur, 6. desember 2006
Athafnastjórnmál Björns Inga og Vilhjálms í hnotskurn
Hækkanir á eldri borgara:
1. Gjaldskrá fyrir heimaþjónustu aldraðra hækkar um 8,8%.
2. Gjaldskrá fyrir frístundastarf eldri borgara hækkar um 9,7%.
3. Gjaldskrá fyrir hádegis- og kvöldmat hækkar um 9,2-9,6%.
4. Kaffi, te, mjólk og drykkjarvörur hækka um 10%.
Hækkanir á barnafjölskyldur:
5. Sundferðir fullorðinna hækka um 25% fyrir hvert skipti, 10 miða kort um 10% en árskort um 8,8%.
6. Gjaldskrá fyrir leikskóla hækkar um 8,8%.
7. Gjaldskrá fyrir frístundaheimili hækkar um 8,8% og hefur þá hækkað um 14,9% á árinu.
8. Gjaldskrá grunnnáms skólahljómsveita hækkar um 20%. Hækkanir á sorphirðu og í stöðumæla í miðbænum.
9. Gjaldskrá fyrir sorphirðu á að hækka um 22,8%.
10. Gjaldskrá í stöðumæla fyrir þriðju og fjórðu stund hækkar um 50-100%.
Miðvikudagur, 6. desember 2006
Þingmaður með vinstri og bæjarstjóri með hægri?
Af Stjániblái.is:
Samstarfsflokkur okkar sjálfstæðismanna gerði þá kröfu að ég léti af starfi bæjarstjóra Akureyrar í kjölfar þess að ég hefði sigur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi. Samfylkingunni fannst það ekki ásættanlegt að ég gegndi starfi bæjarstjóra á sama tíma og ég leiddi lista sjálfstæðismanna í kosningabaráttu fyrir Alþingiskosningarnar á komandi vori. Ég varð með öðrum orðum að afsala mér starfinu sem fyrst í kjölfar prófkjörsins svo meirihlutinn héldi í stað þess að gegna starfinu lengur.
Ætlaði Kristján Þór Júlíusson virkilega að sitja áfram sem bæjarstjóri á Akureyri samhliða því að vera þingmaður þjóðarinnar?
Miðvikudagur, 6. desember 2006
John McClaine og James Bond
Þeir Kristófer Helgason og Þorgeir Ástvaldsson á Bylgjunni hringdu í mig síðdegis og ræddu við mig um nýjustu James Bond-myndina, sem ég gaf þrjá og hálfa stjörnu.
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra á vefsetri sínu 4. des. ´06
Fólk
Hugmyndabankar Sósíaldemókrata
-
The New Policy Institute
-
The Fabian Society
-
Global Progressive Forum
-
Progressive Policy Institue
-
Policy Network
Sósíaldemókratar um heim allan
-
Norski Verkamannaflokkurinn
-
Sænski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Danski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Finnski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Breski Verkamannaflokkurinn
-
Þýski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Grænlenski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Færeyski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Franski Sósíalistaflokkurinn
-
Hollenski Verkamannaflokkurinn
-
Belgíski Sósíalistaflokkurinn (hollenskumælandi)
-
Belgíski Jafnaðarmannaflokkurinn (frönskumælandi)
-
Austuríski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Írski verkamannaflokkurinn
-
Ítalski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Verkamannaflokkurinn í Lúxemburg
-
Maltneski Verkamannaflokkurinn
-
Norður-írski Verkamannaflokkurinn
-
Norður-írski Framfaraflokkurinn
-
Spænski Sósíalistaflokkurinn
-
Pórtúgalski Sósíalistaflokkurinn
-
Skoski Þjóðarflokkurinn
-
Jafnaðarmannaflokkurinn í Wales
-
Svissneski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Gríski Sósíalistaflokkurinn
-
Króatíski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Tékkneski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Ungverski Sósíalistaflokkurinn
-
Eistneski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Lettneski Verkamannaflokkurinn
-
Lettneska Samfylkingin
-
Pólski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Pólski Vinstriflokkurinn
-
Pólska Vinstrifylkingin
-
Rúmenski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Serbneski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Slóvakíski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Afríska Þjóðarráðið
-
Japanski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Japanski Lýðræðisflokkurinn
-
Ísraelski Verkamannaflokkurinn
-
Madaraka flokkurinn í Kenýa
-
Indónesíski Lýðræðisflokkurinn
-
Indverska Þjóðarráðið
-
Indverski Sósíalistaflokkurinn
-
Sósíalistaflokkur Chile
-
Lýðræðisflokkur Chile
-
Þjóðfrelsisflokkur Costa Rica
-
Samstöðuflokkkurinn í Quebec
-
Þjóðarflokkurinn í Quebec
-
Jafnaðarmannaflokkurinn í Hong Kong
-
Framlínuflokkurinn í Hong Kong
-
Borgaraflokkurinn í Hong Kong
-
Demókratíski byltingarflokkurinn í Mexíkó
-
Jafnaðar- og valfrelsisflokkur bænda í Mexíkó
-
Mongólski Þjóðbyltingarflokkurinn
-
Ný-sjálenski Verkamannaflokkurinn
-
Pakistanski Þjóðarflokkurinn
-
Verkamannflokkurinn í Singapore
-
Suður-Kóreski Verkamannaflokkurinn
-
Tyrkneski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Tyrkneski Þjóðarflokkurinn
-
Afganski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Kanadíski Lýðræðisflokkurinn
-
Ástralski Verkamannaflokkurinn
-
Brasilíski Verkamannaflokkurinn
-
Brasilíski sósíalistaflokkurinn
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Taktu afstöðu
Tenglar
Íslenskir sósíaldemókratar á netinu í stafrófsröð
- Agnar Freyr Helgason
- Alma Joensen
- Andrés Jónsson
- Anna Kristín Gunnarsdóttir
- Anna Pála Sverrisdóttir
- Arndís Anna Gunnarsdóttir
- Atli Bollason
- Atli Rafnsson
- Ágúst Einarsson
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Páll Árnason
- Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
- Bjarni Gaukur Þórmundsson
- Björgvin G. Sigurðsson
- Björgvin Guðmundsson
- Björk Vilhelmsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Bryndís Nielsen
- Dagbjört Hákonardóttir
- Dagur B. Eggertsson
- Dofri Hermannsson
- Einar Örn Einarsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Gauti Eggertsson
- Glúmur Baldvinsson
- Grétar Gunnarsson
- Guðbjartur Hannesson
- Guðfinnur Sveinsson
- Guðmundur Rúnar Árnason
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðríður Arnardóttir
- Guðrún Birna le Sage de Fontenay
- Guðrún Erlingsdóttir
- Guðrún Ögmundsdóttir
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnar H. Gunnarsson
- Gunnar Svavarsson
- Gylfi Þorkelsson
- Helga Rakel Guðrúnardóttir
- Helga Tryggvadóttir
- Helga Vala Helgadóttir
- Helgi Hjörvar
- Hildur Edda Einarsdóttir
- Hrafn Jökulsson
- Hörður Guðbrandsson
- Ingimundur Sveinn Pétursson
- Ingólfur Margeirsson
- Jakob Frímann Magnússon
- Jens Sigurðsson
- Jóhann Ársælsson
- Jóhanna Sigurðardóttir
- Jón Gunnarsson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Karl V. Matthíasson
- Katrín Júlíusdóttir
- Kristján L. Möller
- Kristján Sveinbjörnsson
- Kristrún Heimisdóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Lúðvík Bergvinsson
- Lúðvík Geirsson
- Magnús Már Guðmundsson
- Magnús Norðdahl
- Mörður Árnason
- Oddný Sturludóttir
- Páll Einarsson
- Ragnheiður Hergeirsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Róbert Marshall
- Sandra Franks
- Sigrún Elsa Smáradóttir
- Sigurjón Sveinsson
- Sonja B. Jónsdóttir
- Stefán Benediktsson
- Stefán Jóhann Stefánsson
- Stefán Jón Hafstein
- Steinunn Valdís Óskarsdóttir
- Svanfríður Jónasdóttir
- Sveinn Kristinsson
- Tinna Mjöll Karlsdóttir
- Valdís Anna Jónsdóttir
- Valgerður B. Eggertsdóttir
- Valgerður Bjarnadóttir
- Þorleifur Örn Arnarsson
- Þórhildur Þorleifsdóttir
- Þórir Hrafn Gunnarsson
- Þórunn Sveinbjarnardóttir
- Þórður Sveinsson
- Örlygur Hnefill Jónsson
- Össur Skarphéðinsson