Leita í fréttum mbl.is

Mogginn og evran

Fyrir jafnaðarmann einsog mig þá voru nýlegar breytingar á Morgunblaðinu virkilega skemmtilegar.  Helsta breytingin sem ég tók eftir var nefnilega sú að Staksteinar voru ekki lengur á síðustu innsíðu blaðsins.  Þannig að í stað þess að lestri blaðsins hjá mér læki með því að lesa óhróður um Ingibjörgu Sólrúnu, þá endar Moggalesturinn nú með nýjustu fréttum af sambandsmálum Britney Spears.

Það er líka einsog Staksteinar hafi mildast við þessa færslu innan blaðsins.  En í morgun virðast Staksteinar vera komnir í gamlar farið og þar birtist ansi furðulegur pistill frá ritstjórunum, þar sem vitnað er í skoðanakönnum meðal almennings á evru svæðinu:

Samkvæmt könnun, sem Financial Times lét gera telja tveir þriðju íbúa Frakklands, Ítalíu og Spánar að evran hafi haft neikvæð áhrif og helmingur Þjóðverja var sömu skoðunar. Í Frakklandi sögðu einungis 5% þeirra, sem spurðir voru, að evran hefði haft jákvæð áhrif.

Tveir þriðju Þjóðverja sögðu að þeir vildu heldur þýzka markið.

Það er óneitanlega athyglisvert að á sama tíma og þetta viðhorf virðist ríkjandi í þeim ESB-ríkjum, sem könnunin náði til hjá því fólki, sem hefur margra ára reynslu af hinum sameiginlega gjaldmiðli hefjast umræður hér um mikilvægi þess að taka upp evruna.

Það er ansi magnað Mogginn noti skoðanakönnun meðal þegna evru ríkjanna sem mótrök gegn því að á Íslandi sé talað um upptöku evrunnar.  Væri ekki nær að einblína frekar á skoðanir þeirra sem hafa vit á því hvernig aðstæður á Íslandi eru?

 Það er einfaldlega svo að bæði hagfræðingar, sem og menn úr viðskiptalífinu hafa bent á kosti evru umfram krónu.  Skoðanir fólks á evru svæðinu eru ansi flóknar.  Sumir sakna ákveðins stolts í því að eiga eigin gjaldmiðil og önnur tilfinningarök eru mjög sterk, sem meðal annars eru ein af ástæðum þess að Svíar höfnuðu Evrunni. Í þessum löndum sem Mogginn vitnar til voru einnig fyrir upptöku evru gríðarlega stórir og sterkr gjaldmiðlar sem sveifluðust ekki til við skýrslugerð danskra banka.  Einnig þurftu þegnar þessara landa ekki að búa við vaxtaokur einsog viðgengst á Íslandi.

Þessar skoðanir almennings á evru svæðinu koma okkur lítið við.  

Það er ansi hætt við því að ef að almenningi í þessum löndum væri gefinn kostur á því að velja á milli evrunnar og þess gjaldmiðils sem við hér á Íslandi notum (með tilheyrandi sveiflum og vaxtaokri) að þá yrðu niðurstöður skoðanakannarinnar sem Moggin vísar í öðruvísi.  Moggaritstjórar ættu að vita betur en að skjóta á Samfylkinguna með svo aumum rökum.

(EÖE) 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Alveg með ólíkindum hvað þig nennið að þrástagast á þessu evru-rugli. Þar utan er Mogginn bara í hlutlausum fréttaflutningi fyrir okkur lesendur, og segir frá óánægjunni  með evruna á meginlandinu. Þá
getur maður rétt ímyndað sér ástandið hér á Íslandi ef við værum
með evru í allt öðru efnahagsástandi og hagsveiflu en í ESB-löndunum. En það getur Ingibjörg Sólrún og co með engu móti
sklilið, enda hrynur kratafylgið í frjálsu falli þessa daganna.

Nei sem betur fer eruð þið kratar áhrifalausir í dag og allt bendir til
að svo verði um ókomin ár. :)

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 31.1.2007 kl. 20:24

2 Smámynd: Nýkratar

"Alveg með ólíkindum hvað þig nennið að þrástagast á þessu evru-rugli."

Já, ég var búinn að gleyma því að það má ekki tala um evruna.  

Þessi rök um að nauðsynlegt sé að halda í eigin gjaldmiðil vegna þess að efnahagssveiflur okkar markaðssvæðis séu ólíkar öðrum svæðum, eru einfaldlega afleit.

Heldurðu að efnahagssveiflur í Kaliforníu og Alaska séu eins?  Hefur einhver í Alaska talað fyrir upptöku annars gjaldmiðils en dollars?  Heldurðu að efnahagssveiflur í Þýskalandi og á Spáni séu eins?  Heldurðu að menn hafi ekki vitað það fyrir upptöku evrunnar að svo væri?

Nýkratar, 31.1.2007 kl. 20:41

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Jú jú ykkur er alveg heimilt að rausa um þessa evru daginn út og daginn inn. En slík umræða er innihaldslaus varðandi daginn í dag
og svo langt sem séð verður. Til að taka upp evru þarf að ganga í
Evrópusambandið. Það ferli tekur mörg ár og þarf auk þess að fara
í þjóðaratkvæði. Þar að auki þarf að breyta stjórnarskrá svo að
fullveldisframsalið rýmist innan hennar. Ekki stendur til að breyta
henni í þá átt skv. niðurstöðu starfandi stjórnarskránefndar, en
það ferlli krefst samþykki tveggja þinga milli kosninga.

Þannig að umræðan um evruna er bara bla bla bla gagnvart
efnahagsmálum næstu ára, enda skilar Samfylkingin og Ingibjörg
Sólrún auðu í þeim málum í dag.  Þess vegna treystir ekki þjóðin
Samfylkingunni í dag, alveg eins og Ingibjörg treystir ekki sálfum
þingflokki sínum.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 31.1.2007 kl. 21:01

4 Smámynd: Ólafur Örn Nielsen

Bendi á grein Stefáns Jóhanns, varaborgarfulltrúa Samfylkingarinnar,  ,,Er Evrópusambandið ólýðræðislegt skrifræðisbákn sem þjónar fremur stórfyrirtækjum en almenningi?"

Sjá: http://www.stefanjohann.is/

Eins og Stefán bendir á myndi innganga í Evrópusambandið draga úr íbúalýðræði. Alls kyns lög og reglugerðir koma frá bákninu sem lýðræðislega kjörnir fulltrúar landanna hafa lítið að segja um. Íbúar sambandsríkjanna eru því sviptir lýðræðinu því umbjóðendur þeirra eru valdaminni en áður.

Mér finnst Samfylkingin einblína of mikið á Evruna og forðast að ræða það reglugerðafargan sem Evrópusambandinu fylgir. Hér er Stefán Jóhann þó undantekning og ættu fleira Samfylkingarfólk að líta til flokksbróður síns.

Sem betur fer virðist landinn þó vera meðviðtaður um þetta skv. nýjustu könnun fréttablaðsins þar sem 2/3 eru andvígir evru og inngöngu í ESB.

http://www.visir.is/article/20070124/FRETTIR01/101240157&SearchID=73270040170939  

Ólafur Örn Nielsen, 1.2.2007 kl. 08:42

5 identicon

Grein eins og þessi er ástæðan fyrir því að ég brosi alltaf góðlátlega þegar Evrópusambandsinnar kvarta undan því að það megi aldrei tala um þessi mál. Þeir vilja nefnilega bara tala um það góða en aldrei það neikvæða.Það hvernig fólk í þessum löndum upplifir kjör sín og aðstæður eftir að evran var tekinn upp er vissulega innlegg inn í þessa umræðu.

Sufjan (IP-tala skráð) 1.2.2007 kl. 09:27

6 identicon

Lífsgæði eru að meðaltali verri innan ESB en á Íslandi, sama má segja um Noreg.

Smá sveiflur er ekki réttlæting fyrir því að fórna sjálfstæðinu aftur til meginlandsins.

Geir Jónsson (IP-tala skráð) 1.2.2007 kl. 09:31

7 identicon

"Smá sveiflur..." 

 Ég er með rúmlega 20 milljón króna verðtryggt húsnæðislán og læt ekki fólk sem býr heima hjá mömmu og pabba segja mér hvað sé réttlætanlegt og hvað ekki.

 Hvaða sjálfstæði er verið að fórna? Yfirráðum okkar yfir fiskimiðunum? Tja við erum alveg einfær um að drepa okkar stofna ein og sjálf og höfum ekki þurft neina hjálp við. Þannig að hin vonda fiskveiðistefna ESB er algjörlega í takt við okkar eigin. Skoðið aflatölur og hvernig meðalþyngd stofnsins hefur þróast á undanförnum 20 árum og sannleikurinn mun gera yður frjálsa.

Allir samningar, allt alþjóðasamstarf hafa skilyrði í för með sér sem má kalla "frelsisskerðingu" eða "valdaafsal". Samstarfi v-evrópuríkjanna var komið á eftir seinni heimstyrjöld til einmitt að gera þau "háðari" innbyrðis og með því draga úr líkum á ófriði. Þannig að sömu rök má nota um aðild að NATO og Norðurlandaráði.

Spurningin er því hvaða völd eru framseld? Tvennt hefur helst verið nefnt sem við megum alls ekki missa fullkomna stjórn yfir og það eru peningamálinn og fiskveiðarnar. Við höfum sýnt að við erum algjörir sóðar í umgenginni um þá auðlind og höfum nú nýlega lagt gegn takmörkunum/banni á togveiðum sem við höfum notað samviskusamlega til að strauja landgrunnið og eyðileggja þar með klakstöðvar fisksins. Meira að segja verðum við að semja við aðrar þjóðir um nýtingu á stofnum sem ganga í okkar eigin lögsögu, t.d. síldin, þannig að það er ekki einu sinni um fullan ákvörðunarrétt að ræða æ í dag.

 Með peningamálinn þarf ekki  að segja margt, annað hvort skilur fólk þetta eða ekki. Lesið viðtalið við forstjóra Actavis í gær. Þar lesið þið rök atvinnulífsins fyrir sinni "inngöngu" sem mun aðeins þýða að við endum með tvö hagkerfi í landinu, annað sem hefur evru sem gjaldmiðil og hitt með krónu. Ef einhver heldur það að gengi hennar sé "stjórnað" af íslenkum ráðamönnum er það mikill, og dýr, misskilningur.

Aron N Þorfinnsson (IP-tala skráð) 1.2.2007 kl. 11:16

8 identicon

Sæll EÖE

Þér finnst mikilvægt að fólk skrifi undir nafni.Það er virðingarverð afstaða því þú kvittar undir þín skrif.Ég sé hinsvegar ekki í fljótu bragði að aðrir aðilar sem eru skráðir sem pennar eða annað á þessari síðu finnist mikilvægt að fólk viti hver skrifar hvað.Textinn bara látinn duga.Þetta er samt ekkert leyndó eins og Orðið á götunni var.

Bears 24 Colts 17

Sufjan (IP-tala skráð) 1.2.2007 kl. 14:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýkratar

Nýkratar
Nýkratar er félagskapur fólks sem aðhyllist sósíaldemókratisma (jafnaðarstefnu) í stjórnmálum.

Fólk

Hugmyndabankar Sósíaldemókrata

Sósíaldemókratar um heim allan

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband