Miðvikudagur, 7. febrúar 2007
Bankar, borgarráðsformaður og borgarstjóri = óeðlileg tengsl
Með stuttu millibili hefur verið sagt frá því í blöðunum að tveir valdamestu kjörnu fulltrúar borgarbúa, þeir Björn Ingi Hrafnsson og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hafi verið í lúxusboðsferðum til útlanda á vegum bankanna.
Kratabloggið furðar sig á því að þetta hafi ekki vakið meiri athygli og því að formaður borgarráðs og borgarstjórinn í Reykjavík skuli ekki hafa verið krafðir skýringa á þessari háttsemi sem víðast hvar myndi verða að hneykslismáli (og í Svíþjóð vafalaust leiða til afsagna).
Það kom fyrst fram fyrir u.þ.b. tveimur vikum að Vilhjálmur borgarstjóri hafi flogið til Lundúna í boði Landsbankans og hafi m.a. fylgst með Arsenal-leik í einkastúku bankans á Emirates-vellinum. Það kom fram á sama stað að Landsbankinn væri viðskiptabanki borgarinnar.
Síðan kom fram í einu dagblaðanna í gær að Birni Inga, formanni borgarráðs, hafi ásamt 200 helstu forstjórum og fjárfestum landsins verið boðið í lúxusferð til þessarar sömu borgar og notið þar alls kyns dýrindis veiga í boði Kaupþings.
Það er ekkert leyndarmál að svona viðgjörningur er hugsaður af bönkunum til að reyna að afla sér viðskiptavildar. Það sér hvert mannsbarn að bankinn gerir þetta í hagnaðarskyni og engu öðru. Það er heldur ekkert við því að segja þegar um er að ræða viðskipti tveggja einkaaðila. En þegar viðskiptin sem bankinn ásælist eru við borgarbúa þá er hin eina rétta leið að þeir sýni þann áhuga með því einfaldlega að bjóða sem hagstæðust kjör og að viðskiptin séu ákveðin með formlegu útboðsferli.
Fullyrða má að þorri skattgreiðenda vilji að kaup á þjónustu fyrir þeirra peninga hafi sem minnst með það að gera hverjum af embættismönnum borgarinnar sé boðið í lúxusferðir.
Það er að okkar mati jafnvel enn alvarlegra að borgarstjórinn skuli þiggja slíka "greiða" af banka sem er í miklum viðskiptum við borgina.
Töluverð gagnrýni kom fram á það á sínum tíma að Geir H. Haarde, þáverandi fjármálaráðherra, skyldi hafa þegið boðsferðir í laxveiði af ákveðnum banka. Málinu var hins vegar lítið sem ekkert fylgt eftir af fjölmiðlum. Og engar reglur virðast vera í gildi um hvaða gjafir/sporslur/greiða kjörnir fulltrúar og embættismenn megi taka við. Reyndar má fara enn lengra aftur og benda á að fyrrum borgarstjóri, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fékk líka á sig vænan skammt af gagnrýni á sínum tíma fyrir að þiggja boðsferð frá Mitsubishi til Japan. Dæmin eru því miður mýmörg.
Það þekkist varla nokkurs staðar í hinum vestræna heimi að ekki séu til neinar reglur um þessa hluti. Víðast hvar eru þvert á móti þær svo strangar að bannað er þiggja nokkuð yfir ákveðinni fjárhæð sem jafngildir þá u.þ.b. nokkur þúsund íslenskum krónum.
Lítið þýðir að halda því fram að bankar væru að splæsa svona miklu á akkúrat þessa sömu menn, nema einmitt af því að þeir gegna trúnaðarstörfum fyrir hönd almennings.
En burtséð frá öllum reglum þá er það auðvitað mikill dómgreindarbrestur af hálfu þessara manna að þiggja þessar ferðir. Þeim er sjálfum fyrir bestu að þetta verði bara bannað. Með því að leyfa sér að taka þátt í þessum leik með bönkunum og öðrum sem kunna að vera að "tríta" þá eitthvað þá gefa þeir færi á sér og búa til andrúmsloft tortryggni.
Björn Ingi ætti að vera farinn að þekkja hvernig er að vera í stjórnmálaflokki sem allur þorri þjóðarinnar tortryggir.
Og Vilhjálmur býður heim alls kyns óþarfa samsæriskenningum með því þiggja góðgerðir frá Landsbankanum aðeins nokkrum vikum áður en hann mun taka þátt í að ákveða hvort eigendum bankans, Björgólfsfeðgum, verði seld ein merkilegasta fasteign í Reykjavík: Fríkirkjuveg 11. Þar mun samkvæmt fréttum ekki aðeins eiga að horfa til þess hver bjóði hæst í eignina heldur verði aðrir huglægir þættir látnir ráða.
Er borgarstjórinn þá orðinn vanhæfur?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:58 | Facebook
Fólk
Hugmyndabankar Sósíaldemókrata
-
The New Policy Institute
-
The Fabian Society
-
Global Progressive Forum
-
Progressive Policy Institue
-
Policy Network
Sósíaldemókratar um heim allan
-
Norski Verkamannaflokkurinn
-
Sænski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Danski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Finnski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Breski Verkamannaflokkurinn
-
Þýski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Grænlenski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Færeyski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Franski Sósíalistaflokkurinn
-
Hollenski Verkamannaflokkurinn
-
Belgíski Sósíalistaflokkurinn (hollenskumælandi)
-
Belgíski Jafnaðarmannaflokkurinn (frönskumælandi)
-
Austuríski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Írski verkamannaflokkurinn
-
Ítalski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Verkamannaflokkurinn í Lúxemburg
-
Maltneski Verkamannaflokkurinn
-
Norður-írski Verkamannaflokkurinn
-
Norður-írski Framfaraflokkurinn
-
Spænski Sósíalistaflokkurinn
-
Pórtúgalski Sósíalistaflokkurinn
-
Skoski Þjóðarflokkurinn
-
Jafnaðarmannaflokkurinn í Wales
-
Svissneski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Gríski Sósíalistaflokkurinn
-
Króatíski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Tékkneski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Ungverski Sósíalistaflokkurinn
-
Eistneski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Lettneski Verkamannaflokkurinn
-
Lettneska Samfylkingin
-
Pólski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Pólski Vinstriflokkurinn
-
Pólska Vinstrifylkingin
-
Rúmenski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Serbneski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Slóvakíski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Afríska Þjóðarráðið
-
Japanski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Japanski Lýðræðisflokkurinn
-
Ísraelski Verkamannaflokkurinn
-
Madaraka flokkurinn í Kenýa
-
Indónesíski Lýðræðisflokkurinn
-
Indverska Þjóðarráðið
-
Indverski Sósíalistaflokkurinn
-
Sósíalistaflokkur Chile
-
Lýðræðisflokkur Chile
-
Þjóðfrelsisflokkur Costa Rica
-
Samstöðuflokkkurinn í Quebec
-
Þjóðarflokkurinn í Quebec
-
Jafnaðarmannaflokkurinn í Hong Kong
-
Framlínuflokkurinn í Hong Kong
-
Borgaraflokkurinn í Hong Kong
-
Demókratíski byltingarflokkurinn í Mexíkó
-
Jafnaðar- og valfrelsisflokkur bænda í Mexíkó
-
Mongólski Þjóðbyltingarflokkurinn
-
Ný-sjálenski Verkamannaflokkurinn
-
Pakistanski Þjóðarflokkurinn
-
Verkamannflokkurinn í Singapore
-
Suður-Kóreski Verkamannaflokkurinn
-
Tyrkneski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Tyrkneski Þjóðarflokkurinn
-
Afganski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Kanadíski Lýðræðisflokkurinn
-
Ástralski Verkamannaflokkurinn
-
Brasilíski Verkamannaflokkurinn
-
Brasilíski sósíalistaflokkurinn
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Taktu afstöðu
Tenglar
Íslenskir sósíaldemókratar á netinu í stafrófsröð
- Agnar Freyr Helgason
- Alma Joensen
- Andrés Jónsson
- Anna Kristín Gunnarsdóttir
- Anna Pála Sverrisdóttir
- Arndís Anna Gunnarsdóttir
- Atli Bollason
- Atli Rafnsson
- Ágúst Einarsson
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Páll Árnason
- Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
- Bjarni Gaukur Þórmundsson
- Björgvin G. Sigurðsson
- Björgvin Guðmundsson
- Björk Vilhelmsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Bryndís Nielsen
- Dagbjört Hákonardóttir
- Dagur B. Eggertsson
- Dofri Hermannsson
- Einar Örn Einarsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Gauti Eggertsson
- Glúmur Baldvinsson
- Grétar Gunnarsson
- Guðbjartur Hannesson
- Guðfinnur Sveinsson
- Guðmundur Rúnar Árnason
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðríður Arnardóttir
- Guðrún Birna le Sage de Fontenay
- Guðrún Erlingsdóttir
- Guðrún Ögmundsdóttir
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnar H. Gunnarsson
- Gunnar Svavarsson
- Gylfi Þorkelsson
- Helga Rakel Guðrúnardóttir
- Helga Tryggvadóttir
- Helga Vala Helgadóttir
- Helgi Hjörvar
- Hildur Edda Einarsdóttir
- Hrafn Jökulsson
- Hörður Guðbrandsson
- Ingimundur Sveinn Pétursson
- Ingólfur Margeirsson
- Jakob Frímann Magnússon
- Jens Sigurðsson
- Jóhann Ársælsson
- Jóhanna Sigurðardóttir
- Jón Gunnarsson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Karl V. Matthíasson
- Katrín Júlíusdóttir
- Kristján L. Möller
- Kristján Sveinbjörnsson
- Kristrún Heimisdóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Lúðvík Bergvinsson
- Lúðvík Geirsson
- Magnús Már Guðmundsson
- Magnús Norðdahl
- Mörður Árnason
- Oddný Sturludóttir
- Páll Einarsson
- Ragnheiður Hergeirsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Róbert Marshall
- Sandra Franks
- Sigrún Elsa Smáradóttir
- Sigurjón Sveinsson
- Sonja B. Jónsdóttir
- Stefán Benediktsson
- Stefán Jóhann Stefánsson
- Stefán Jón Hafstein
- Steinunn Valdís Óskarsdóttir
- Svanfríður Jónasdóttir
- Sveinn Kristinsson
- Tinna Mjöll Karlsdóttir
- Valdís Anna Jónsdóttir
- Valgerður B. Eggertsdóttir
- Valgerður Bjarnadóttir
- Þorleifur Örn Arnarsson
- Þórhildur Þorleifsdóttir
- Þórir Hrafn Gunnarsson
- Þórunn Sveinbjarnardóttir
- Þórður Sveinsson
- Örlygur Hnefill Jónsson
- Össur Skarphéðinsson
Athugasemdir
Ég er alveg sammála því að kjörnir embættismenn (sem og aðrir embættismenn) þurfa að stíga varlega til jarðar hvað varðar að þyggja boðsferðir, eða sitja veislur á vegum fyrirtækja. Það er grátt svæði sem getur valdið tortryggni og misskilningi.
En hefur Ný-kratabloggið þá einhverjar heimildir fyrir því hvort að ISG hugleiddi að segja af sér eða á einhvern annan hátt "axla ábyrgð" þegar gagnrýni á boðsferð hennar (og annara borgarfulltrúa R-listans, ef ég man rétt) var gagnrýnd? Eða var sú ferð e.t.v "barns síns tíma"?
G. Tómas Gunnarsson, 7.2.2007 kl. 19:01
bara sama athugasemd og síðast til ykkar Sé að það er ekki búið að fjölga valmöguleikunum varðandi óskasamsteypustjórn í skoðanakönnuninni ykkar. Þetta er nu frekar leiðandi skoðanakönnun
Guðmundur H. Bragason, 7.2.2007 kl. 21:04
Ég þakka kærlega fyrir þarfa áminningu. Vitanlega þurfa að vera reglur, bæði hjá sveitarfélögum og ríki, um hvaða gjafir er við hæfi að þiggja og hverjar ekki. Þetta á hvorttveggja að gilda um kjörna fulltrúa og embættismenn. Þá stendur upp á stjórnmálaflokka að setja sér siðaskrár sem taki á þessum atriðum. Mig rámar í að fyrir einhverjum misserum hafi Vinstri grænir kynnt texta sem laut m.a. að einkahagsmunum þingmanna, s.s. hlutabréfaeign. Kannski að einhver gæti rifjað það upp og upplýst hvort reglur séu þar um viðtöku gjafa.
Páll Vilhjálmsson, 7.2.2007 kl. 23:09
Hér er umræða að mínu skapi. Þetta hefur lengi loðað við alltof marga stjórnmálamenn og opinbera starfsmenn hérna á fróni. Stundum gremst manni stórlega hvað það virðist þurfa lítið til að kaupa velvilld þeirra.
Það hefur hingað til ekki þótt tiltökumál að þiggja kannski máltíð eða svo á meðan viðræður fara fram. Greiddar ferðir til útlanda með uppihaldi, veislum, tónleikum og öðrum álíka viðburðum inniföldum eru hins vegar komnar yfir strikið. Slík útgjöld setja stjórnmálamenn óhjákvæmilega í vörn gagnvart slíkum greiðum. Þeir eiga samt sjálfir að hafa þá dómgreind að sjá í gegnum það hvernig reynt er að hafa óeðlileg áhrif á þá með greiðasemi (eða mútum) af svona tagi. Það verður að vera hægt að treysta mönnum fyrir þessum hluta starfs þeirra.
Haukur Nikulásson, 8.2.2007 kl. 08:08
Hann er frekar furðulegur þessi listi ykkar yfir hugmyndafræðinga Sjálfstæðisflokksins en að setja Gunnar í Krossinum inná á hann!
Það er skítapólitík.
Sufjan (IP-tala skráð) 8.2.2007 kl. 14:42
Fyrirgefðu Einar minn að ég skuli hafa klikkað á því að sjá svarið þitt á hionum staðnum, minn feill En þakka þér kærlega svarið samt sem áður og eigum við svo ekki bara að vera vinir
Guðmundur H. Bragason, 8.2.2007 kl. 15:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.