Föstudagur, 24. nóvember 2006
Fordómalaus dómsmálaráðherra
Eins og væntanlega einhverjir vita þá heldur Björn Bjarnason dómsmálaráðherra úti vefsetrinu Björn.is og þar heldur ráðherrann dagbók, setur inn ræður sínar og greinar og skrifar reglulega pistla.
Dómsmálaráðherra þjóðarinnar segist vera hlutlaus og fordómalaus maður - laus við sleggjudóma. Kratabloggið efast ekki um það. Ráðherrann hefur fullyrt að hann blandar sér ekki inn í lögreglurannsóknir undirmanna sinna eða reynir að hafa áhrif á dómara. Fyrir honum eru allir jafnir. Sama hvað menn heita - Ólafur Börkur Þorvaldsson, Jón Steinar Gunnlaugsson, Jón Ásgeir Jóhannesson o.s.frv.
Kratabloggið ákvað að gera heldur flippaðan hlut - og fara inn á vefsetur dómsmálaráðherrans! Þar er að að finna leitarvél mikla og er hægt að kalla fram leit að hinum ýmsu orðum og orðasamsetningum. Það er ekki hægt að segja annað að Björn sé tæknivæddur netverji því veraldarvefurinn er ekki nein bóla.
Í vísindalegri rannsókn komu eftirfarandi fyrirtæki/uppnefni/nöfn upp þegar Kratabloggið pikkaði þau í leitarvél Björns:

Björgólfur Guðmundsson 0 grein á vefsvæðinu
Bakkavör 2 greinar á vefsvæðinu
Lýður Guðmundsson 1 grein á vefsvæðinu
Baugsmiðlar 21 greinar á vefsvæðinu
Magnús Þorsteinsson 0 grein á vefsvæðinu
Baugur 14 greinar á vefsvæðinu
Jóhannes Jónsson 7 greinar á vefsvæðinu
Avion Group 0 grein á vefsvæðinu
Sigurður Einarsson 1 grein á vefsvæðinu
Björgólfur Thor Björgólfsson 0 grein á vefsvæðinu
Jón Ásgeir Jóhannesson 8 greinar á vefsvæðinu
Benedikt Jóhannesson 1 grein á vefsvæðinu
Hannes Smárason 0 grein á vefsvæðinu
Gunnar Smári Egilsson 16 greinar á vefsvæðinu
Baugstíðindi 7 greinar á vefsvæðinu
Straumur-Burðarás 0 grein á vefsvæðinu
Það er ekki hægt að segja ákveðið mynstur komi í ljós þegar að niðurstöður þessarar vísindalegu rannsóknar eru skoðaðar. Dómsmálaráðherra ríkisins er laus við sleggjudóma og leggur menn og fyrirtæki ekki í einelti. Fyrir Birni Bjarnasyni eru allir jafnir. Sama hvað menn heita - Lýður Guðmundsson, Jóhannes Jónsson, Björgólfur Guðmundsson, Jón Ásgeir Jóhannesson o.s.frv.
p.s. við þetta vill Kratabloggið bæta að þegar Jón Ólafsson, þessi sem Davíð Oddsson sagði vera ,,mesta skattsvikara sögunnar", er sleginn í leitarvél Björns Bjarnasonar er niðurstaðan - 28 greinar á vefsvæðinu.
Föstudagur, 24. nóvember 2006
Enn af jafnaðarmannastjórninni í Norður-Kóreu
Skorað var á okkur að birta fleiri tilvitnanir í Vefþjóðviljann. Kratablogginu er það bæði ljúft og skylt. Hér er annar gullmoli frá nýfrjálshyggjumönnunum um sósíaldemókratisma og Norður-Kóreu:
Í Norður-Kóreu hefur jafnaðarstefnu verið fylgt út í æsar og afleiðingarnar eru hungursneyð og ógnarstjórn. Hvergi í heiminum er ástand borgaranna jafn slæmt og í Norður-Kóreu
Og í öðrum pistli á http://andriki.is stóð:
Jú, hrein félagshyggja hefur verið reynd víða og eru íbúar Norður-Kóreu þessi misserin að súpa seyðið af slíkri tilraunastarfsemi.
Kannski ekki neitt sérstaklega málefnalegir en allavega bráðfyndnir í þessari þráhyggju sinni.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 17:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 24. nóvember 2006
Símafyrirtækin eru í fákeppni
Varaþingmaðurinn Sandra Franks á skilið hrós fyrir að hafa tekið upp á Alþingi ýmis óútskýrð atriði sem snerta meinta samkeppni á íslenska farsímamarkaðnum.
Sandra var í viðtali hjá Jóhanni Haukssyni á Útvarpi Sögu í gærmorgun og á heimasíðu hennar má lesa grein hennar um málið. Jóhann lofaði í þættinum að ganga á eftir svörum frá Símanum og Vodafone. Það verður spennandi að heyra hvort þau svör fáist í þættinum í dag. Og enn meira spennandi verður að heyra hvort það verði ærleg svör eða gamalkunnur spuni um að hér sé símakostnaður lægri en víða annars staðar.
Við birtum hér brot úr grein Söndru:
Farsímanotandi sem er í áskrift hjá Betri leið? hjá Símanum greiðir 11 krónur fyrir hverja mínútu þegar hann hringir innan GSM-kerfis Símans. Mínútugjaldið hækkar hins vegar upp í 22 krónur, eða um 100%, ef hann hringir yfir í önnur kerfi. Sama er uppi á teningnum hjá Vodafone. Farsímanotandi í áskriftarleið GSM vinir hjá Vodafone greiðir 10,90 króna mínútugjald þegar hringt er innan GSM-kerfis, en þegar símtalið fer yfir í önnur farsímakerfi hækkar mínútugjaldið í 21,90 krónur á mínútu. Þarna er um sömu hækkun að ræða og hjá Símanum. Hjá báðum fyrirtækjunum hækkar gjaldið þá um 100%.
Hér virðast því stóru símafyrirtækin stunda verðsamráð í skjóli fákeppni. Er það löglegt? Í kjölfar þess að númeraflutningur milli símkerfa var gefinn frjáls vita notendur ekki lengur hvort hringing fer á milli kerfa þegar númer er valið. Notandinn getur því hæglega verið fluttur á milli símkerfa án þess að hafa nokkra hugmynd um það. Hann hefur því enga vitneskju um þegar símtalið verður allt í einu 100% dýrara. Bæði símafyrirtækin bregðast þeirri siðferðilegu skyldu að láta kaupanda þjónustunnar vita þegar gjaldið tvöfaldast við að hringing er flutt milli kerfa.
Þessi mikla aukning á mínútugjaldi er óskiljanleg. Það eru engin tæknileg rök fyrir því að mínútugjaldið hækki svo gríðarlega við það eitt að hringing flyst milli kerfa. Ég flokka hana því undir okur í skjóli fákeppni.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 23. nóvember 2006
Sagnfræði
Sósíaldemókratismi á ekki upp á pallborðið hjá öllum eins og gengur. Samt er þetta sú hugmyndafræði í stjórnmálum sem á sér talsmenn á langflestum þjóðþingum heims. Meðal þeirra sem seint munu teljast til aðdáenda okkar kratana eru ritstjórnarmeðlimir Vefþjóðviljans, bæði hinir nafngreindu og hinir nafnlausu.
Sem dæmi talaði Vefþjóðviljinn alltaf í eina tíð um "jafnaðarmannastjórnina í Norður-Kóreu"
Sem var reyndar nokkuð fyndið hjá þeim...
Fimmtudagur, 23. nóvember 2006
Skref í rétta átt
303 Ríkislögreglustjóri.
1.01 Ríkislögreglustjóri. Gert er ráð fyrir að beint greiðsluframlag úr ríkissjóði lækki um 3 m.kr. í ljósi áætlunar um jafnmikla hækkun á ríkistekjum stofnunarinnar af hlutdeild í áfengisgjaldi.
Framlög til embættis Ríkislögreglustjóra hafa hækkað stórkostlega undanfarin ár og í litlu samhengi við framlög til málaflokksins í heild. Í ár virðist ætla verða breyting þar á miðað við tillögur meirihluta fjárlaganefndar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 23. nóvember 2006
Varla genginn í "skólagjaldabjörg" samt
Að tryggja jafnan aðgang allra að menntun er eitt mikilvægasta viðfangsefni sósíaldemókrata hvarvetna. Líka á Íslandi.
Það er lykilatriði að mati ritstjórnar Kratabloggsins að það verði áfram á allra færi að mennta sig. Og það veit Björgvin og er sama sinnis.
Óskhyggja gamla skólastjórans Hjálmars Árnasonar breytir þar engu um. Orð Björgvins G. Sigurðssonar snúast eins og Kratabloggið kýs að skilja þau aðeins um mögulegar útfærslur á mikilli menntasókn sem von er á þegar að sósíaldemókratar komast aftur hér til valda. Hann er fylgjandi jafnrétti til náms eins og allir góðir kratar.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 18:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 23. nóvember 2006
Orðskýringar
Hann er samt eitthvað að fara fram úr sér í dramatíseringu sinni á færslu okkar um viðtal Jóhanns Haukssonar við Valdimar Leó Friðriksson, fyrrverandi þingmann Samfylkingarinnar.

En að sjálfsögðu lítur Kratabloggið ekki á svik Valdimars Leó við kjósendur Samfylkingarinnar þeim augum að þau jafnist á við samstarf Vidkuns Quisling við nasista í Noregi í síðari heimsstyrjöldinni.
Langt í frá.
Valdimar Leó er reyndar sjálfur kunnur af því að nota sterk orð til að lýsa skoðunum sínum. T.d. lýsti hann því yfir í ræðu á landsþingi Ungra jafnaðarmanna fyrr í haust að "Framsóknarflokkurinn væri ekkert annað en bófaflokkur og mafía."
Við vonum því að hann taki ekki það því ekki of nærri sér vera kallaður "Quislingur" af fyrrum félögum sínum meðal íslenskra krata. Og Gunnar vonandi ekki heldur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 23. nóvember 2006
Umbætur á fjármögnun stjórnmálastarfs betri en á horfðist
Kratabloggið hefur nú farið betur yfir frumvarp það sem kom frá nefnd um lagalega umgjörð stjórnmálaflokka og hefur hýrnað all nokkuð yfir ritstjórninni frá fyrstu viðbrögðum við kynningu málsins.
Frumvarpið tekur vissulega á því hvernig hægt sé að fjármagna framboð í samkeppni við núverandi stjórnmálaflokka og því ekki alveg rétt sem kom fram hér í gær að þessi hlið mála hefði verið vanrækt. Flokkar/framboðslistar sem fá að minnsta kosti 2,5% í kosningum til Alþingis/sveitarstjórna eiga rétt á styrkjum eftir sömu hlutfallstöflu og aðrir. En það er nota bene greitt EFTIR kosningar.
Það hallar hins vegar enn á fólk eftir því hvort það tilheyri einhverjum af gömlu stjórnmálaflokkunum eða ekki, varðandi opinbera styrki til stjórnmálastarfsemi og er það til lengri tíma litið óásættanlegt fyrirkomulag. Jafn réttur og aðstaða til að taka þátt í stjórnmálum er ein af grunnstoðum sósíaldemókratismans og að okkar mati lýðræðisins.
Fyrirkomulag þessarar mála hér á landi hefur nú þegar skekkt stjórnmálalitrófið með áþreifanlegum hætti.
Þannig hefur Kratabloggið heimildir fyrir því að Frjálshyggjufélagið hafi ætlað að standa við fyrirheit sitt um að bjóða fram til Alþingis en að athugun sem félagið lét gera hafi leitt í ljós að kostnaðurinn yrði margir tugir milljóna og þannig hafi framboðið strandað.
Frumvarpið þýðir því miður að staðan er enn 1-0 fyrir ríkisvæddar skoðanir gegn lýðræðinu.
Fimmtudagur, 23. nóvember 2006
Þegar stórt er spurt
---
Össur Skarphéðinsson þingmaður í umræðum á Alþingi um vatnstjón í yfirgefnu húsnæði varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli.
Fimmtudagur, 23. nóvember 2006
Draugagangur í gamla Alþýðuflokknum?
Valdimar Leó Friðriksson sagðist í viðtali við morgunhanann Jóhann Hauksson í morgun á Útvarpi Sögu vera búinn að fá símtöl frá gömlum krötum. Hann gaf fyrst í skyn að þeir væru að bera í hann víurnar. En breytti svo um gír og sagði að gamlir kratar væru enn til og margir þeirra væru að tala sín á milli en væru svo sem ekkert að tala við hann sérstaklega.
---
Valdimar Leó telur sig geta betur unnið í sínum málum sem einangraður stjórnarandstöðuþingmaður heldur en með þingflokk Samfylkingarinnar á bakvið sig. Það meikar auðvitað engan sens!
Fimmtudagur, 23. nóvember 2006
Ýmsar góðar áherslubreytingar í fjárlögunum
Breytingatillögur meirihluta fjárlaganefndar á fjárlögunum eru komnar fram og var þeim dreift á Alþingi í dag.
Kratabloggið hefur rennt yfir tillögurnar og í fljótu bragði virðist sem þær áherslur sem meirihluti fjárlaganefndar er með séu margar nokkuð jákvæðar.
Athygli vekur umtalsverð aukning í framlögum til íþrótta- og æskulýðsmála sem og til íslenskukennslu fyrir útlendinga. Skorið er niður á öðrum stöðum.
Þetta eru vel þegnar breytingar á forgangsröðun fjárveitingarvaldsins og ástæða til að hrósa Birki Jóni, Einari Oddi og félögum fyrir þessar tillögur. Vonandi er hér ekki aðeins um að ræða tímabundin áhrif kosningavetrar.
Ekki er venjan að fjárlagafrumvarpið breytist mikið á milli annarrar og þriðju umræðu á alþingi og er yfirleitt samið um það milli flokkanna að hafa umræður í lágmarki. Hér er því um að ræða líklega niðurstöðu á fjárlögunum fyrir árið 2007.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 23. nóvember 2006
Koma svo Ellert!
Það kom fram í fréttum fyrir helgi að Ellert B. Schram (formaður 60plús félagskaparins) væri kominn inn á þing sem varamaður fyrir Helga Hjörvar í tvær vikur.
Kratabloggið hefur ekki orðið var við þingstörf Ellerts í fjölmiðlum enn sem komið er - en vonandi stendur það til bóta. Ástæða er til að hvetja þennan reynslumikla stjórnmálamann að taka til óspilltra málanna og tala óhikað fyrir hagsmunum eldri borgara t.d. við umræðu um fjárlagafrumvarpið. Nógu er af að taka.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 23. nóvember 2006
Spyr hvort Gulli og Bingi hafi samið um mönnun á forstjórastól OR

Hann spyr m.a. hvernig standi á því að Guðlaugur Þór Þórðason, sem gagnrýndi afar harðlega stjórnun Orkuveitunnar á meðan hann var í minnihluta, skuli sem stjórnarformaður vera með sama mann í vinnu við að stjórna fyrirtækinu og Alfreð Þorsteinsson kaus. En Guðmundur Þóroddsson situr sem fastast sem forstjóri OR.
Hlynur, sem þótti naskur frétthaukur á sínum tíma, giskar á að þarna komi til eitthvert samkomulag Guðlaugs Þórs við Björn Inga Hrafnsson, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins.
Björn Ingi mun reyndar sjálfur taka við stjórnarformennsku í Orkuveitunni eftir nokkra mánuði og því er kannski ekki mikill tími til stefnu hjá Guðlaugi að breyta áherslum í rekstrinum í samræmi við fjölbreytta gagnrýni sem hann setti fram á meðan hann var enn í minnihluta í borginni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 22. nóvember 2006
Blaðamenn, álitgjafar og bloggarar á launaskrá hjá Pentagon
Er eðlilegt að bandaríski herinn taki þátt í áróðurstríði á netinu, útvarpi og í sjónvarpi?
Að hann greiði fólki fyrir að fara í þætti, á spjallsíður og halda fram rökum fyrir stríðsrekstrinum í Írak?
Samkvæmt nýlegum fréttum þá hefur bandaríska varnarmálaráðuneytið ákveðið að setja á fót sérstaka deild í þessum tilgangi.
Það er umhugsunarefni fyrir Íslendinga nú þegar að rætt er um að koma á fót íslenskri leyniþjónustu að fréttafölsun og röng upplýsingagjöf eru á meðal viðurkenndra vinnuaðferða hjá slíkum stofnunum.
Vefurinn | Breytt 23.11.2006 kl. 00:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 22. nóvember 2006
Árni "Skattman" gerist æ stórtækari þegar hann seilist í veski landsmanna

Ríkisstjórnarflokkarnir halda því statt og stöðugt fram að skattaálögur hafi lækkað á meðan stjórnarandstöðuflokkarnir halda hinu gagnstæða fram (reyndar einnig Ríkisskattstjóri, verkalýðshreyfingin, Landsamband eldri borgara og Stefán Ólafssson prófessor).
En til að leysa þennan ágreining er auðveldast á benda á orð fjármálaráðuráðherrans sjálfs. Í skriflegu svari ráðherrans frá því í fyrra á þingi, sem Kratabloggið gróf upp, kemur beinlínis í ljós að skattbyrði hafi aukist hjá öllum tekjuhópum nema hjá þeim 10% tekjuhæstu. En hjá þeim hefur skattbyrðin minnkað umtalsvert undanfarin ár.
Hægt er að sjá svar Árna Skattman Mathiesen á http://www.althingi.is/altext/132/s/pdf/0561.pdf og er það taflan efst á blaðsíðu 2 sem er áhugaverðust í þessu sambandi.
Annars má líka sjá töfluna hér fyrir neðan sem sýnir þessa þróun á einfaldan hátt.
------------------------------------
Eftirfarandi tafla sýnir skattbyrði hjóna/sambúðarfólk sem hlutfall af heildartekjum og eftir tekjutíundum, nema fyrir efsta flokkinn sem skipt er í tvennt.
2004 2003 2002
1 8,4 6,8 5,5
2 13,5 11,8 11,1
3 16,4 15,4 15,0
4 19,3 18,3 18,0
5 21,4 20,6 20,1
6 23,0 22,3 22,3
7 24,7 24,0 23,9
8 25,8 25,3 25,4
9 27,4 26,9 27,0
10 22,8 23,0 24,5
10:1 28,0 28,3 28,9
10:2 20,4 20,7 22,3
------------------------------------
Lífstíll | Breytt 23.11.2006 kl. 00:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 22. nóvember 2006
Alvarlegur lýðræðishalli
Þrátt fyrir að hið langþráða markmið og baráttumál, um að flokkarnir kæmu sér saman um lög um fjármál stjórnmálaflokkana, hafi nú loksins náðst þá verður ekki vart mikillar spennu eða fagnaðarláta.
Kannski er það vegna þess að tilfinningin í brjósti margra er sú að niðurstaðan hafi verið hálfgert skítamix sem litlu muni breyta - þó hún sé e.t.v. skref í rétta átt.
Önnur ástæða er sú að í niðurstöðum nefndarinnar er ekkert tekið á því hvernig flokkar sem ekki hafa boðið fram til Alþingis áður eða hafa ekki náð að fá þingmann kjörin eiga að fjármagna starfsemi sína. Starfsemi sem er jafn mikilvæg lýðræðinu og starfsemi gömlu flokkanna.
Raunar var kynning á niðustöðum áðurnefndrar nefndar notað sem tilefni til hækkunar á framlagi ríkissjóðs til stjórnmálaflokkana sem eiga nú fulltrúa á Alþingi úr 300 milljónum í 430 milljónir á ársgrundvelli.Kratabloggið tekur undir með Frjálshyggjufélaginu sem ályktaði í vikunni um að fyrirkomulag þessara mála væri ógnun við lýðræðið í landinu.
Hins vegar er það í anda sósíaldemókratisma að styðja við stjórnmálasamtök eins og önnur frjáls félagasamtök. Kratabloggið getur því ekki tekið undir að rétt sé að einstaklingar og fyrirtæki fjármagni þessa starfsemi. Það eina sanngjarna og skynsamlega í þessum efnum er að styrkja líka ný stjórnmálaöfl og gera það samkvæmt einhverjum mælikvarða sem jafnar aðstöðu þeirra gagnvart núverandi valdhöfum.
Það er enn megn skítalykt af þessu málum og ástæðan er sú að það hallar verulega á hluta íslenskra borgara sem vilja hafa áhrif á stjórn landsins, með því að þeim er mismunað sem vilja bjóða fram en tilheyra ekki þeim fimm flokkum sem nú eiga fulltrúa á Alþingi.
![]() |
Takmörk sett á kostnað frambjóðenda í prófkjörum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 22. nóvember 2006
Bless Bless; Blair, Persson og Schröder! Halló Zapatero!
Það verður seint af forsætisráðherra Spánar, sósíaldemókratanum José Luis Zapatero, tekið að hann skuli hafa megnað að koma því í gegn þrátt fyrir andstöðu kaþólikka að heimila giftingar samkynhneigðra á Spáni. Þeir öðluðust samtímis fullan rétt til ættleiða börn.
Þetta gerði hann á fyrsta árinu sem hann var í embætti. Lögin tóku gildi þann 3. Júlí, 2005.
Það er upplífgandi að sjá þegar að leiðtogar jafnaðarmanna komast til valda að þeir skuli standa með hugsjónum sínum og gera breytingar í samræmi við kosningaloforðin.
Zapatero er ef til vill ekki mörgum kunnur á Íslandi en hann er engu að síður orðinn lykilmaður í alþjóðahreyfingu sósíaldemókrata og mikilvægur talsmaður sósíaldemókratískra gilda innan Evrópusambandsins.
Hann er verðugur arftaki Tonys Blair, Gerhards Schröder og Görans Persson í fylkingarbrjósti evrópskra jafnaðarmanna.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 22. nóvember 2006
Dýr nekt í BNA
Bandaríska Fjarskiptaeftirlitið hefur sektað CBS sjónvarpsstöðina um 39 milljónir og 468 þúsund íslenskar vegna atviks sem varð í beinni útsendingu frá skemmtiatriðum í hálfleik á úrslitaleiknum í bandarískum ruðningi.
Justin Timberlake og Janet Jackson sungu þar saman og í lok lagsins reif Timberlake af lepp sem skýldi hægra brjósti Jackson. CBS hyggst áfrýja sektinni.
Bandaríkjamenn eru að mörgu leyti undarleg þjóð. Kvikmynda- og sjónvarpsmenning þeirra er gegnsýrð af nekt og ekki síður af jákvæðum vísunum í neyslu kannabisefna.
En á sama tíma er afar harkalegum aðferðum er beitt í svokölluðu stríði þeirra gegn eiturlyfjum og nú verðleggja þeir sýningu á hluta af nöktu brjósti Janetar Jackson á tæpar 40 milljónir íslenskra króna.
Eitt er ljóst af þessu - að hún er mjög mismunandi dýr nektin í Bandríkjunum.
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 23:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fólk
Hugmyndabankar Sósíaldemókrata
-
The New Policy Institute
-
The Fabian Society
-
Global Progressive Forum
-
Progressive Policy Institue
-
Policy Network
Sósíaldemókratar um heim allan
-
Norski Verkamannaflokkurinn
-
Sænski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Danski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Finnski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Breski Verkamannaflokkurinn
-
Þýski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Grænlenski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Færeyski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Franski Sósíalistaflokkurinn
-
Hollenski Verkamannaflokkurinn
-
Belgíski Sósíalistaflokkurinn (hollenskumælandi)
-
Belgíski Jafnaðarmannaflokkurinn (frönskumælandi)
-
Austuríski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Írski verkamannaflokkurinn
-
Ítalski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Verkamannaflokkurinn í Lúxemburg
-
Maltneski Verkamannaflokkurinn
-
Norður-írski Verkamannaflokkurinn
-
Norður-írski Framfaraflokkurinn
-
Spænski Sósíalistaflokkurinn
-
Pórtúgalski Sósíalistaflokkurinn
-
Skoski Þjóðarflokkurinn
-
Jafnaðarmannaflokkurinn í Wales
-
Svissneski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Gríski Sósíalistaflokkurinn
-
Króatíski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Tékkneski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Ungverski Sósíalistaflokkurinn
-
Eistneski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Lettneski Verkamannaflokkurinn
-
Lettneska Samfylkingin
-
Pólski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Pólski Vinstriflokkurinn
-
Pólska Vinstrifylkingin
-
Rúmenski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Serbneski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Slóvakíski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Afríska Þjóðarráðið
-
Japanski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Japanski Lýðræðisflokkurinn
-
Ísraelski Verkamannaflokkurinn
-
Madaraka flokkurinn í Kenýa
-
Indónesíski Lýðræðisflokkurinn
-
Indverska Þjóðarráðið
-
Indverski Sósíalistaflokkurinn
-
Sósíalistaflokkur Chile
-
Lýðræðisflokkur Chile
-
Þjóðfrelsisflokkur Costa Rica
-
Samstöðuflokkkurinn í Quebec
-
Þjóðarflokkurinn í Quebec
-
Jafnaðarmannaflokkurinn í Hong Kong
-
Framlínuflokkurinn í Hong Kong
-
Borgaraflokkurinn í Hong Kong
-
Demókratíski byltingarflokkurinn í Mexíkó
-
Jafnaðar- og valfrelsisflokkur bænda í Mexíkó
-
Mongólski Þjóðbyltingarflokkurinn
-
Ný-sjálenski Verkamannaflokkurinn
-
Pakistanski Þjóðarflokkurinn
-
Verkamannflokkurinn í Singapore
-
Suður-Kóreski Verkamannaflokkurinn
-
Tyrkneski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Tyrkneski Þjóðarflokkurinn
-
Afganski Jafnaðarmannaflokkurinn
-
Kanadíski Lýðræðisflokkurinn
-
Ástralski Verkamannaflokkurinn
-
Brasilíski Verkamannaflokkurinn
-
Brasilíski sósíalistaflokkurinn
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Taktu afstöðu
Tenglar
Íslenskir sósíaldemókratar á netinu í stafrófsröð
- Agnar Freyr Helgason
- Alma Joensen
- Andrés Jónsson
- Anna Kristín Gunnarsdóttir
- Anna Pála Sverrisdóttir
- Arndís Anna Gunnarsdóttir
- Atli Bollason
- Atli Rafnsson
- Ágúst Einarsson
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Páll Árnason
- Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
- Bjarni Gaukur Þórmundsson
- Björgvin G. Sigurðsson
- Björgvin Guðmundsson
- Björk Vilhelmsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Bryndís Nielsen
- Dagbjört Hákonardóttir
- Dagur B. Eggertsson
- Dofri Hermannsson
- Einar Örn Einarsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Gauti Eggertsson
- Glúmur Baldvinsson
- Grétar Gunnarsson
- Guðbjartur Hannesson
- Guðfinnur Sveinsson
- Guðmundur Rúnar Árnason
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðríður Arnardóttir
- Guðrún Birna le Sage de Fontenay
- Guðrún Erlingsdóttir
- Guðrún Ögmundsdóttir
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnar H. Gunnarsson
- Gunnar Svavarsson
- Gylfi Þorkelsson
- Helga Rakel Guðrúnardóttir
- Helga Tryggvadóttir
- Helga Vala Helgadóttir
- Helgi Hjörvar
- Hildur Edda Einarsdóttir
- Hrafn Jökulsson
- Hörður Guðbrandsson
- Ingimundur Sveinn Pétursson
- Ingólfur Margeirsson
- Jakob Frímann Magnússon
- Jens Sigurðsson
- Jóhann Ársælsson
- Jóhanna Sigurðardóttir
- Jón Gunnarsson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Karl V. Matthíasson
- Katrín Júlíusdóttir
- Kristján L. Möller
- Kristján Sveinbjörnsson
- Kristrún Heimisdóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Lúðvík Bergvinsson
- Lúðvík Geirsson
- Magnús Már Guðmundsson
- Magnús Norðdahl
- Mörður Árnason
- Oddný Sturludóttir
- Páll Einarsson
- Ragnheiður Hergeirsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Róbert Marshall
- Sandra Franks
- Sigrún Elsa Smáradóttir
- Sigurjón Sveinsson
- Sonja B. Jónsdóttir
- Stefán Benediktsson
- Stefán Jóhann Stefánsson
- Stefán Jón Hafstein
- Steinunn Valdís Óskarsdóttir
- Svanfríður Jónasdóttir
- Sveinn Kristinsson
- Tinna Mjöll Karlsdóttir
- Valdís Anna Jónsdóttir
- Valgerður B. Eggertsdóttir
- Valgerður Bjarnadóttir
- Þorleifur Örn Arnarsson
- Þórhildur Þorleifsdóttir
- Þórir Hrafn Gunnarsson
- Þórunn Sveinbjarnardóttir
- Þórður Sveinsson
- Örlygur Hnefill Jónsson
- Össur Skarphéðinsson