Leita í fréttum mbl.is

Athafnastjórnmál Björns Inga og Vilhjálms í hnotskurn

Dagur B. Eggertsson
Dagur B. Eggertsson segir einu pólitísku tíðindin sem felast í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar vera gjaldskrárhækkanir á öllum sviðum langt umfram verðlagshækkanir. Dagur birtir á heimasíðu sinni Topp tíu listi yfir gjaldskrárhækkanir í fjárhagsáætlun borgarinnar sem er í anda athafnastjórnmála Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar og Björns Inga Hrafnssonar.

Hækkanir á eldri borgara:
1. Gjaldskrá fyrir heimaþjónustu aldraðra hækkar um 8,8%.
2. Gjaldskrá fyrir frístundastarf eldri borgara hækkar um 9,7%.
3. Gjaldskrá fyrir hádegis- og kvöldmat hækkar um 9,2-9,6%.
4. Kaffi, te, mjólk og drykkjarvörur hækka um 10%.

Hækkanir á barnafjölskyldur:

Bingi og Villi 5. Sundferðir fullorðinna hækka um 25% fyrir hvert skipti, 10 miða kort um 10% en árskort um 8,8%.
6. Gjaldskrá fyrir leikskóla hækkar um 8,8%.
7. Gjaldskrá fyrir frístundaheimili hækkar um 8,8% og hefur þá hækkað um 14,9% á árinu.
8. Gjaldskrá grunnnáms skólahljómsveita hækkar um 20%. Hækkanir á sorphirðu og í stöðumæla í miðbænum.
9. Gjaldskrá fyrir sorphirðu á að hækka um 22,8%.
10. Gjaldskrá í stöðumæla fyrir þriðju og fjórðu stund hækkar um 50-100%.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Það er þörf á tiltekt eftir 12 ára óstjórn í fjármálum borgarinnar sem kostar okkur borgarana mikið enda hafði Ingibjörg Sólrún ekki áhuga á bókhaldi eins og við munum sem borgum mistökin og sukkið.

Við munum það líka við nþ.k. kosningar til Alþingis :)

Heimir Lárusson Fjeldsted, 6.12.2006 kl. 01:01

2 identicon

Þannig er það jú líka alltaf í pólitík: Ef vinstrimenn klúðra einhverju er það vinstrimönnum að kenna og ef hægrimenn klúðra einhverju er það líka vinstrimönnum að kenna.

hee (IP-tala skráð) 6.12.2006 kl. 10:29

3 identicon

Hvað áttu við Hildur? Að R-listinn hafi ekki stjórnað borginni og að ekki séu til staðar skuldir sem þarf að greiða niður? Skuldir sem var safnað í tíð R-listans? Svona almenn athugasemd er fráleit. Svo er ein spurning til Kratabloggsins - kunnið þið skýringar á því af hverju systurbloggið - Orðið - tók alltaf út athugasemdir og leiðréttingar á færslum sem voru þeim „óþægilegar“ af einhverjum ástæðum ? Nú síðasta hafa þeir alveg skrúfað fyrir athugasemdir. Nútímaleg samræðustjórnmál.

ag (IP-tala skráð) 6.12.2006 kl. 10:42

4 identicon

Jú, R-listinn stjórnaði borginni og það hentar núverandi meirihluta vel því að akkúrat ekkert af því sem þeir gera er nú á þeirra ábyrgð og þeir fara létt með að svíkja kosningaloforð.

hee (IP-tala skráð) 6.12.2006 kl. 10:51

5 identicon

Já, ég varð var við gjaldskrárhækkun í gær, og þá vegna stöðumælasektar. Þar sem ég er námsmaður við HÍ, þá sæki ég Þjóðarbókhlöðuna ansi oft. Undanfarið, og þá aðallega þegar prófin nálgast, þá koma bílastæða-vandamálin í ljós, og það getur verið ansi hreint pirrandi.

En svo ég haldi nú áfram, þá voru öll bílastæði, bæði fyrir framan Bókhlöðuna, og Hótel Sögu full, svo ég brá á það ráð, líkt og 10-15 aðrir, að leggja bílnum úti á grasi. Inni á bókhlöðu var ég svo í 10 mínútur eða svo, á meðan ég skilaði bókum fyrir námskeiðið Þjóðernishyggja og þjóðernisátök. Þegar ég kom út aftur, þá blasti við þessi væna sekt upp á 2500kr. Helvítis hugsaði ég með mér, hafa þeir ekkert þarfara að gera. Ég get svo svarið það að ég hef ekki séð einn einasta stöðumælavörð á svæðinu, síðan skólinn byrjaði í haust. En hvað um það, sektina borgaða ég, og Reykjavíkurborg var svo væn að gefa mér 550kr afslátt, ef ég borgaði innan þriggja daga, en sætt hjá þeim ;)

Jón Óðinn Reynisson (IP-tala skráð) 6.12.2006 kl. 13:10

6 identicon

Hildur - hvaða kosningaloforð nákvæmlega? Ég spyr því ég man það ekki, en mér finnst það alveg líklegt. Hins vegar er ný komin skýrsla KPMG um stöðu borgarinnar og er hún víst töluvert verri en menn höfðu haldið. Slíkt hlítur að vera eðlilegur forsendubrestur vegna kosningaloforða - eða á alltaf að halda þau, skilyrðislaust? Annars erum við ábyggilega sammála, mér er meinilla við þessar hækkanir.

Jón Óðinn - hrikaleg saga, ljóst að bílastæði eru vandamál á mörgum stöðum. Það þýðir ekki að eðlilegt sé að líta framhjá því að fólk leggi upp á grasi. Það væri fljótt að eyðileggjast ef allir gerðu líkt og þú og þess vegna eru viðurlög við brotinu. Talaðu við þá sem stjórna þjóðarbókhlöðunni og reyndu að láta breyta túninu í bílastæði.

ag (IP-tala skráð) 6.12.2006 kl. 14:44

7 identicon

Meðal kosningaloforða Sjalla var 25% lækkun leikskólagjalda -sem þeir eru að hækka núna. Þeir höfðu alla valdatíð R-listans talað illa um fjárhagsstöðu borgarinnar en eins og Steinunn Valdís benti á í kosningabaráttunni gáfu þeir henni greinilega góða einkunn fyrst þeir treystu sér fyrir þessi djörfu kosningaloforð.

Þessi skýrsla KPMG var bæði jákvæð og neikvæð. Ég man ekki betur en það hafi verið orð Vilhjálms að hún hafi verið "svört" á meðan Dagur B benti á að hún sannaði að fjárhagsstaða borgarinnar væri mun betri en Sjálfstæðismenn höfðu haldið fram alla valdatíð R-listans.

Annars viðurkenni ég að ég kynnti mér hana ekki út í hörgul. Hvað sem því líður er hér ekkert um annað að ræða en svik sjálfstæðismanna við kjósendurna, svik sem á sér ekki réttlætingu í verkum R-listans.

hee (IP-tala skráð) 6.12.2006 kl. 15:19

8 identicon

Já það er satt hjá þér (AG), þetta er hrikaleg saga ;). Þú hefur greinilega ekki skilið point-ið hjá mér. Ég var ekki að réttlæta það sem ég gerði, þá hefði ég sleppt því að setja það hér inn. Ég var einungis að benda á það að stöðumælasektir hafa hækkað. Sömuleiðis finnst mér 2500kr fullmikið fyrir brot af þessu tagi. Ég tel að förstöðumenn Þjóðarbókhlöðunnar ráði síðan litlu um það hvort túnið verði gert að bílastæði eður, ei. Það er á valdsviði borgarinnar.

Jón Óðinn Reynisson (IP-tala skráð) 6.12.2006 kl. 15:47

9 identicon

 

Jón - Þjóðarbókhlöðumenn ættu að lobbía, til þess ættir þú að tala við þá. R-listinn hækkaði auka stöðubrotin á sínum tíma upp í þessa upphæð.

Hildur - sammála þér, ekki nógu gott að svíkja þetta, en eins og við þekkjum eru menn ekki einir í meirihluta. Þó vill ég alls ekkert kenna Framsókn um þetta, þvert á móti, en einhverjar forgangsraðanir hafa væntanlega verið gerðar í málefnasamning. Sjáum hvað setur á kjörtímabilinu og hvort það takist að laga þennan afleita rekstur eitthvað; hversu nákvæmlega vondur hann var nákvæmlega skiptir kannski ekki öllu máli, þó skýrsla KPMG hafi sýnt það svart á hvítu að hann var verulega slæmur. Ég vil þó taka heilshugar undir það að meginreglan er að standa eigi við kosningaloforð. Látum þetta svo nægja af löngum athugasemdum, líklegast ekki þetta sem menn eru að leita eftir með svona athugasemdakerfi. Ég vildi síður að jafnaðarmenn lokuðu þessu kommentakerfi líka eins og á ordid.blog.is, en því var lokað þegar menn gagnrýndu færslur (og þeir höfðu ekki lengur við að eyða þeim út).

ag (IP-tala skráð) 6.12.2006 kl. 22:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýkratar

Nýkratar
Nýkratar er félagskapur fólks sem aðhyllist sósíaldemókratisma (jafnaðarstefnu) í stjórnmálum.

Fólk

Hugmyndabankar Sósíaldemókrata

Sósíaldemókratar um heim allan

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband